|
Blómsveigur til minningar um Bjarna Ólaf Björnsson |
AÐ aflokinni messu sem hófst kl.13:00 á sjómannadaginn 07.júní 2009 lögðu þeir nafnar, Bjarni Ólafur Guðmundsson og Bjarni Ólafur Magnússon blómsveig við minnisvarða um nafna þeirra, Bjarna Ólaf Björnsson frá Bólstaðarhlíð sem þeir eru skýrðir í höfuðið á ásamt fimm öðrum en eins og kunnugt er hrapaði Bjarni(Daddi) eins og hann var almennt kallaður, í uppgöngunni úr svonefndri Hagaskoru suðaustanvert á Bjarnarey 4.júní 1959.

Talið frá vinstri eru :Bjarni Ólafur Guðmundsson, Bjarni Ólafur Magnússon og
dóttir hans, Gígja. Þá Haukur Guðjónsson frá Reykjum, Örn Einarsson frá Brekku og Ágúst Bergsson en þeir voru með Dadda í eggjum hinn örlagaríka dag ásamt Hlöðvé Johnsen frá Saltabergi sem nú er látinn. Lengst til hægri er síðan Magnús Bjarnason æskufélagi Bjarna sáluga.
Innsetn. texta og mynd...
Halli Geir.
|