|
Til minningar um Bjarna Ólaf Björnsson(Dadda) frá Bólstaðarhlíð. |
|
Fjórða Júní næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Bjarni Ólafur Björnsson(Daddi) frá Bólstaðarhlíð hrapaði í Bjarnarey 24 ára gamall en hann var fæddur 9.mai 1935. Hann var þá við svartfuglseggjatöku í suðaustanverðri Eynni í svokallaðri Skoru. Með honum voru, HLöðver Johnsen frá Saltabergi, Örn Einarsson frá Brekku, Haukur Guðjónsson frá Reykjum og Ágúst Bergsson. Að sögn voru tildrög slyssins þau að eggjamenn voru allir niðri í berginu í svokölluðum "göngum" sem er lárétt sylla um það bil 15 faðma fyrir neðan brún og liggur suður með öllu berginu en sigið er af þessari syllu niður á bæli neðar í berginu. Svo háttaði til að eggjamenn voru orðnir uppiskroppa með eggjakörfur og bauðst Daddi til þess að fara göngurnar til baka og klifra upp á brún og ná í fleiri . Eftir það spurðist ekkert til Dadda þrátt fyrir leit og eftirgrennslan en talið er að hann hafi hrapað úr uppgöngunni úr Skorunni . Í þann tíð þótti ekki tiltökumál að lesa sig upp úr Skorunni og voru menn ekki taldir liðtækir fjallamenn nema hafa það á sínu færi. Daddi var sagður mjög liðtækur fjallamaður og því hefði þessi sendiferð hans átt að vera honum létt verk. En svo geta brugðist krosstré sem önnur tré. Fráfall Dadda, þessa unga manns í blóma lífsins var öllum Eyjamönnum gríðarlegt áfall.

Þar sem um þessar mundir eru þessi tímamót, hafa eftirlifandi félagar Dadda í þessari afdrifaríku
för,ákveðið að leggja blómsveig við minnsvarða hrapaðra og drukknaðra á lóð Landakirkju, sunnudaginn 7.júní
Innsetn: Halli Geir.
|