Verið velkomin á heimasíðu Veiðifélags Bjarnareyinga. Félagið mynda rúmlega 30 einstaklingar sem hafa það helst að markmiði sínu að veiða lunda, síga eftir eggjum fýls og svartfugls og njóta þess að vera til á fallegasta stað veraldar. Í því markmiði leigjum við af Vestmannaeyjabæ Bjarnarey, hrikalegustu en um leið fallegustu úteyjuna.Þar eigum við ágætis skála sem í daglegu tali er kallaður BÓLIÐ.
Tilgangurinn með heimasíðunni er að safna saman á einn stað, upplýsingum um Bjarnarey. Halda til haga sögulegum fróðleik og munnmælum um menn og málefni sem annars myndi týnast. Þá mun þessi vettvangur verða félagslegur fundarstaður okkar á netinu. Það er von okkar að með tímanum náum við að safna saman umtalsverðu magni af upplýsingum sem flestum til gagns og gamans.
Lundinn Sestur Upp!
Í gærkvöldi 21.04.2009 var lundinn sestur upp, þó í litlum mæli í austanverðum Stórhöfða. Spennandi verður að fylgjast með hvernig honum reiðir af í sumar hér við Eyjar.